- Alls hafa þá 86 nemendur útskrifast með diplómagráðu frá Prisma
- Skapandi og gagnrýnin hugsun í þverfaglegu námi
- Námið sjálft er nýsköpun á Íslandi
 |
| Útskriftarhópur Prisma 11. júní 2009 - Svanur Sigurbjörnsson tók myndina - smellið til að sjá stærri mynd |
Annar nemendahópurinn í Prisma útskrifaðist með pompi og prakt með diplóma frá Listaháskóla Íslands og Háskólanum á Bifröst á fimmtudaginn 11. júní. Útskriftin fór fram í Hugmyndahúsi Háskólanna (gamla Ellingsen húsinu). Að þessu sinni útskrifuðust 22 nemendur með gráðu í Prisma en í lok mars útskrifuðust 64 nemendur.
Rektorar LHÍ og Háskólans á Bifröst og forstöðukona Prisma ávörpuðu gesti og Gjörningaklúbburinn (Icelandic Love Corporation) settti álög á útskriftarhópinn.
Prisma er nýtt diplómanám sem Listaháskóli Íslands og Háskólinn á Bifröst hafa skipulagt í samvinnu við Reykjavíkur Akademíuna. Námið er að þessu sinni metið til 12 eininga (ECTS) á háskólastigi og nýtist sérstaklega þeim einstaklingum sem vilja horfa gagnrýnum og uppbyggilegum augum á samtímann, efla færni sína í að starfa á fleiri sviðum en áður og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.
Metaðsókn hefur verið í Prisma frá því það hóf göngu sína í byrjun árs en yfir 150 manns hafa sótt um í Prisma. Námið var skipulagt sem viðbrögð háskólanna við ástandinu í landinu og sóttu námið nemendur á aldrinum 20 til 67 ára, með mjög fjölbreyttan bakgrunn hvað menntun og starfsgreinar varðar. Í nemendahópnum voru einstaklingar úr fjármálageiranum, viðskiptum og verslun, grafískri hönnun, arkitektúr, heilbrigðisgeira, myndlist, leiklist, fyrirtækjarekstri, kennslu osfrv.
Yfir fimmtíu sérfræðingar víðsvegar að úr samfélaginu koma að kennslu í Prisma. Meðal þeirra eru Jón Ólafsson heimspekingur, Haukur Ingi Jónasson, guðfræðingur og sálgreinandi, Njörður Sigurjónsson, viðskiptafræðingur og heimspekingur, Kristín Eysteinsdóttir leikstjóri, Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst, Andri Snær rithöfundur, Guðmundur Oddur Magnússon (Goddur), prófessor við Listaháskólann, Viðar Hreinsson framkvæmdarstjóri Reykjavíkur Akademíunnar, Hjálmar Ragnarsson, rektor LHÍ og tónskáld, Kristján Leósson vísindamaður við HÍ, Sumarliði R. Ísleifsson sagnfræðingur, Þorvaldur Þorsteinsson, rithöfundur og myndlistarmaður og Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir hönnuður.
Utan um nemendahópana hafa haldið fjórir „auðveldarar”. Þau Hildigunnur Sverrisdóttir arkitekt, Sólveig Ólafsdóttir sagnfræðingur og meistaranemi í menningarfræðum, Sigurður Jónas Eysteinsson, lífskúnstner og sérfræðingur á ýmsum sviðum, Hallmar Sigurðsson leikhúsfræðingur og M.A. í menningarfræðum.
Eimskipafélagið hefur sýnt Prisma stuðning í verki með því að lána húsnæði undir námið og sýnt með því fordæmi um samfélagslega ábyrgð sem vert er að hrósa fyrir.
Hér má lesa útskriftarræðu Hrundar Gunnsteinsdóttur, forstöðukonu Prisma.