15. júní 2009
Stefán Svavarsson ráðinn prófessor við Háskólann á Bifröst
 |
| Stefán Svavarsson, nýráðinn prófessor við viðskiptadeild Háskólans á Bifröst |
Stefán Svavarsson hefur verið ráðinn prófessor í reikningshaldi og endurskoðun við viðskiptadeild Háskólans á Bifröst. Stefán lauk prófi í viðskiptafræði með reikningshald og endurskoðun sem aðalfag frá Ríkisháskólanum í Ohio á árinu 1970. Hann starfaði sem endurskoðandi um tveggja ára skeið í Bandaríkjunum að loknu námi. Stefán lauk prófum til löggildingar í endurskoðun á árinu 1975 og var sama ár skipaður lektor í endurskoðun við Háskóla Íslands. Hann starfaði þar nærfellt óslitið í 30 ár og hlaut kennsluverðlaun ársins 2002. Stefán vann samhliða kennslu sem endurskoðandi og hefur unnið fyrir fyrirtæki og stofnanir í flestum atvinnugreinum. Síðustu ár hefur Stefán unnið hjá Landsvirkjun, Seðlabanka Íslands og Háskólanum í Reykjavík þar sem hann er í hlutastarfi sem forstöðumaður meistaranáms í reikningshaldi og endurskoðun.
Stefán hefur á starfsferlinum verið í ýmsum nefndum og stjórnum, m.a. formaður reikningsskilaráðs, formaður prófnefndar endurskoðenda og formaður stjórnar Fjármálaeftirlitsins. Hann hefur skrifað fjölmargar greinar í innlend tímarit og blöð um reikningshald, endurskoðun og skattamál, og ennfremur skrifað kafla í erlendar bækur um reikningsskilagerð á Íslandi.
Að sögn Ágústs Einarssonar rektors Háskólans á Bifröst er mjög mikill fengur að Stefáni fyrir skólann. Hann hefur verið helsti kennari Íslendinga á sérsviði sínu í áratugi og er ákaflega vel virtur í íslensku viðskiptalífi.