10. júní 2009
Viðskiptaráðherra í heimsókn á BIfröst
 |
| Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra og Ágúst Einarsson rektor |
Viðskiptaráðherra, Gylfi Magnússon, heimsótti Háskólann á Bifröst þann 10. júní og ávarpaði meðal annars þátttakendur í verkefninu Heldra líf sem nú stendur yfir á Bifröst.
Heldra líf er vikudagskrá í háskólaþorpinu á Bifröst. Hún er einkum ætluð eldri borgurum og þar er boðið upp á fjölbreytta dagskrá með fræðsluerindum og ráðgjöf um málefni líðandi stundar, ferðalagi um héraðið og kvöldvökur með menningarlegri dagskrá.
Borgfirðingar og aðrir áhugasamir eru velkomnir í háskólaþorpið til að hlýða á viðskiptaráðherra eða taka þátt í öðrum áhugaverðum þáttum dagskrárinnar sem lýkur föstudaginn 12. júní.
Nánar um Heldra líf.