Fréttir
10. júní 2009

Heldra líf á ferðalagi

Þátttakendur hlýða á séra Geir Waage í Reykholti
 Nú stendur yfir í Háskólanum á Bifröst dagskrá sem hlotið hefur nafnið Heldra líf. Um er að ræða vikudvöl í háskólaþorpinu fyrir eldri borgara þar sem boðið er upp á fjölbreytta fræðslu og skemmtun. Þriðjudaginn 9. júní fóru þátttakendur í ferð um Borgarfjörðinn og heimsóttu meðal annars Reykholt, Hvanneyri, Fossatún, Landnámssetur Íslands og Borg á Mýrum. Heimamenn á hverjum stað tóku á móti hópnum og fræddu um sögu staðanna og þá starfsemi sem þar fer fram.

 

Nánar um Heldra líf

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri