Fréttir
13. júní 2009

Annað líf - samstarf við Syddansk University í sýndarveruleika

 

Nemandi á leið á fund í sýndarveruleika - smellið á myndina til að sjá stærri útgáfu
Háskólinn á Bifröst og Syddansk University hafa ákveðið að nota þrívíddar sýndarveruleika umhverfið „Second Life“ til þess að efla samstarf milli skólanna. Nemendur viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst munu frá og með næsta skólaári taka þátt í tilraunaverkefni sem mun efla samskipti og samstarf nemenda í skólunum tveimur.  

 

Eyjan „Bifrost“ í Second Life sem er í eigu Syddansk verður notuð sem samstarfsvettvangur og kennsluumhverfi. Nemendur mæta þar í fyrirlestra og á fundi til þess að móta og vinna verkefni sín. Þrívíddarumhverfi sem þetta bíður upp á alveg nýja möguleika í kennslu og mikið rými er fyrir sköpunargleði nemenda og kennara. Nemendur skrá sig inn í Second Life og skapa sinn AVATAR sem er sýndarsjálf hvers nemanda  inni í Second Life.  Hægt er að ganga um og skoða það sem fyrir augu ber, halda fundi, mæta í fyrirlestra, skiptast á skoðunum og efla félagsleg tengsl.

 

Sífellt fleiri háskólar um heim allan eru farnir að nota sýndarveruleika sem útvíkkun á kennslurými sínu og til þess að undirbúa nemendur sína fyrir tæknilega krefjandi framtíð. Háskólar á borð við  Harvard og Stanford ásamt mörgum öðrum háskólum hafa sett upp eigin háskólakampusa í Second Life þar sem nemendur geta hist í þrívíddar sýndarveruleika, mætt í tíma og tekið þátt í umræðum og verkefnavinnu.  

 

Leiðandi háskóli

 

Háskólinn á Bifröst er fyrsti háskólinn á Íslandi sem notar þrívíddar sýndarveruleika eins og Second Life til þess að miðla námsefni og efla alþjóðleg tengsl skólans. Hér er um að ræða frumkvöðlastarf í háskólakennslu og mikla nýbreytni fyrir nemendur.

 

Með samstarfinu við Syddansk University er Háskólinn á Bifröst enn að þróa fjölbreytta kennsluhætti og ýta undir möguleika nemenda til þess að tengjast nemendum erlendis og vinna þverfagleg og krefjandi verkefni á alveg nýjan hátt.

 

Þeim sem vilja kynna sér Second Life er bent á slóðina http://secondlife.com/

 

Nánari upplýsingar um verkefnið veita Signý Óskarsdóttir, stundakennari og Ásta Dís Óladóttir, forseti viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst í síma 433 3000.

 

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri