Fréttir
14. júní 2009

Eiga Íslendingar að ganga í Evrópusambandið?

 

 

Heimssýn, hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, gengst fyrir almennum fundi um Evrópusambandsmál á Bifröst sunnudaginn 14. júní klukkan 16:00. Fundarefni er fyrirhuguð umsókn Íslands um aðild að ESB og stofnun svæðisdeilda Heimssýnar á Vesturlandi.

 

Frummælendur verða eftirtaldir:

Eiríkur Bergmann fyrir hönd staðarhaldara.

Gunnar Ásgeir Gunnarsson bóndi á Hýrumel talar fyrir hönd heimamanna.

Vigdís Hauksdóttir alþingismaður, Framsóknarflokki.

Einar K. Guðfinnsson alþingismaður, Sjálfstæðisflokki.

Ásmundur Einar Daðason alþingismaður, Vinstri hreyfingunni grænt framboð.

 

Fundarstjóri verður Sturla Böðvarsson fv. forseti Alþingis.

 

Fundurinn verður haldinn í Hriflu, sal Háskólans að Bifröst. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.

  

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri