6. júní 2009
Útskrift frá Háskólanum á Bifröst - ræða rektors
 |
| Jóhanna M. Einarsdóttir, Snorri Styrkársson, Eva Sólan, Jóhann Á. Hansen og Ágúst Einarsson, rektor |
Tæplega 80 nemendur voru í dag brautskráðir frá Háskólanum á Bifröst. Viðurkenningar fyrir besta námsárangur hlutu þau Jóhann Ágúst Hansen, Steinunn Birna Magnúsdóttir og Þorsteinn Kr. Ásgrímsson í grunnnámi og Eva B. Sólan Hannesdóttir, Jóhanna María Einarsdóttir og Snorri Styrkársson í meistaranámi. Auk þeirra hlutu 12 nemendur sem enn stunda nám í skólanum afslátt eða niðurfellingu skólagjalda í viðurkenningarskyni fyrir góðan árangur.
Fulltrúar útskriftarnema fluttu ávörp sem og Guðni Þórðarson, fyrrum forstjóri ferðaskrifstofunnar Sunnu, en hann útskrifaðist frá Samvinnuskólanum, forvera Háskólans á Bifröst, lýðveldisárið 1944.
Í hátíðarræðu sinni lagði Ágúst Einarsson, rektor, áherslu á að besta vopnið til að vinna bug á erfiðleikum væri menntun og hann hvatti útskriftarnema til að nýta menntun sína vel og bregðast ekki skyldum sínum við sjálfa sig, fjölskyldur sínar og þjóðina.
Í máli rektors kom fram að Háskólinn á Bifröst hefur nú eignast allt íbúðarhúsnæði á svæðinu og að unnið er að áætlun um að lækka leigugjald húsnæðis í háskólaþorpinu.
Rektor kvaðst styðja hugmyndir nefnda sem nýverið skiluðu áliti um endurskipulagningu háskólanáms um að fækka háskólum í landinu. Slíkt myndi leiða til akademísks ávinnings á sviði kennslu og rannsókna og til sparnaðar í rekstri. Hann lýsti þeirri skoðun sinni að Háskólinn á Bifröst, Listaháskólinn og Háskólinn í Reykjavík ættu að kanna með formlegum hætti stofnun nýs háskóla sem byggir á þremur stoðum, listum og heimspeki, viðskiptum og lögfræði og loks tækni og verkfræði. Með þeim hætti mætti stofna háskóla hinna skapandi atvinnugreina og 21. aldarinnar með öflugri starfsemi á Bifröst, höfuðborgarsvæðinu og reyndar víðar um land.
Að lokinni athöfn var boðið upp á veitingar í hátíðarsal gamla skólahússins.
Hlusta má á ræðu rektors hér.