8. júní 2009
Vefþulan tekin í notkun á Bifröst
Háskólinn á Bifröst hefur nú tekið vefþuluna í notkun á vef skólans. Vefþulan er vefþjónusta sem er ætluð þeim sem af einhverjum ástæðum eiga erfitt með að lesa texta af skjá.
Þegar smellt er á hlusta efst á síðum vefjarnins hefur svokölluð Ragga lesturinn. Ragga er talgervill sem byggir á RealSpeak 4, sem er talgervilstækni sem fyrirtækið Nuance hefur þróað. Munurinn á Röggu og eldri gerðum talgervla er sá að hún stafar ekki hljóðin heldur á hún í mörgum tilfellum orðið í heild sinni í réttri mynd. Þannig hljómar hún umtalsvert betur en eldri gervlar. Þegar Ragga var búin til var lögð mikil vinna í að kortlegga öll hljóð sem notuð eru í nútíma íslensku - og síðan var saminn texti þar sem öll þessi hljóð komu fyrir í öllum hljómföllum sem notuð eru.
Ragnheiður Clausen var fengin til að lesa þennan texta og eyddi hún nokkrum vikum í hljóðveri við það. Þegar búið var að lesa textann voru upptökurnar sendar til Belgíu, þar sem þær voru klipptar niður í svokallaða hljóðunga, sem eru hljóðbútar af mismunandi lengdum.
Morgunblaðið og Edda - miðlun og útgáfa, létu hönnuðum vefþulunnar í té tíðnitöflur yfir algengustu orð í íslensku skrifmáli og voru þær töflur hafðar til hliðsjónar við val á orðum sem æskilegt væri að væru til heil.