5. júní 2009
Rannsóknamiðstöðin aðstoðar við gerð listastefnu Íslands
Rannsóknamiðstöð Háskólans á Bifröst hefur að beiðni Bandalags íslenskra listamanna (BÍL) tekið að sér aðstoð við gerð listastefnu. Forsaga málsins er að stjórn BÍL var á samstarfsfundi með menntamálaráðherra 30. mars 2009 beðin koma með tillögu að menningarstefnu. Þeirri áskorun hefur stjórnin tekið og ákveðið að miða stefnumótunarstarfið við listir enda eru listirnar kjarni hverrar menningarstefnu. Tengist þessi vinna 100 daga áætlun ríkisstjórnarinnar en þar segir í lið 42: „Vinna hafin við mótun menningarstefnu til framtíðar í samráði við listamenn”.
Forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar Háskólans á Bifröst er Njörður Sigurjónsson.