Háskólinn á Bifröst, SÍA - Samband íslenskra auglýsingstofa og ÍMARK hafa gert með sér samkomulag um sérhæft markaðsnám á háskólastigi sem er sérsniðið að þörfum þeirra sem vilja auka við menntun, þekkingu, og hæfni á sviði markaðsfræða.
Val námskeiða og skipulag þeirra er samstarfsverkefni kennara við Háskólann á Bifröst og sérfræðinga sem eru aðilar að SÍA og ÍMARK.
Opið markaðsnám er fjarnám sem býður upp á mikið valfrelsi þannig að nemendur geta valið þá kúrsa sem best henta hverju sinni. Nemendur geta stundað nám samhliða vinnnu eða tekið fleiri kúrsa ef námið er stundað einvörðungu. Kúrsar eru að jafnaði 6-8 ECTS einingar.
Sérsniðnir kúrsar í markaðs-, samskipta- og auglýsingafræðum eru 16 talsins. Með því að bæta við öðrum 13 kúrsum og ritgerð ljúka nemendur BS námi í viðskiptafræði.
Þetta er nám sem er sérstaklega sniðið fyrir þá sem vinna á auglýsingastofum og að markaðsmálum í fyrirtækjum eða hafa áhuga á að vinna að markaðsmálum í framtíðinni.
Hér er um kjörið tækifæri að ræða til að styrkja sig faglega jafnframt vinnu og þeim sem misst hafa vinnu tímabundið gefst tækifæri til að nýta tímann til þess að auka við þekkingu sína og færni.
Samkvæmt reglugerð skólans gilda eftirfarandi reglur um inngöngu í grunnnám á háskólastigi:
a. Til inngöngu í grunnnám þarf umsækjandi að hafa lokið stúdentsprófi eða öðru sambærilegu framhaldsskólanámi.
b. Deildarforseta er heimilt að veita undanþágu frá ofangreindu ákvæði búi umsækjandi yfir reynslu og/eða þekkingu sem meta má til jafns við stúdentspróf.
Sjá nánari lýsingu á tímasetningu námskeiða hér.
Sækja má um skólavist hér.
Opna markaðsnámið er lánshæft samkvæmt reglum Lánasjóðs íslenskra námsmanna.
Kennarar í Opna markaðsnáminu eru sérfræðingar á sviði markaðsmála og með mikla reynslu hver á sínu sviði.
Hver kúrs í fjarnámi á Bifröst er þannig upp byggður að nemendur fá sérstakan hugbúnað til þess að tengjast Námskjá skólans í gegnum netið. Nemendur fá senda til sín fyrirlestra á rafrænu formi tvisvar í viku og geta þeir hlýtt á þá þegar þeim hentar og hvar sem er, einnig eru lögð fyrir verkefni sem nemendur leysa einstaklingsbundið eða með öðrum. Í hverjum námskeiði er ein vinnuhelgi á Bifröst þar sem nemendur hittast um miðjan dag á föstudegi og eru fram á seinni hluta laugardags. Á vinnuhelgum eru umræður og verkefnavinna auk þess sem nemendum gefst kostur á að njóta þeirrar einstöku náttúrufegurðar sem nágrenni Bifrastar býður upp á. Sjá nánari lýsingu á fjarnámi hér.