Fréttir
5. júní 2009

Brautskráning nemenda frá Háskólanum á Bifröst vorið 2009

Laugardaginn 6. júní  verða  tæplega 80 nemendur brautskráðir  frá Háskólanum á Bifröst  úr grunn- og framhaldsnámi  við háskólann og úr frumgreinadeild.  Við skólann eru starfræktar þrjár háskóladeildir, viðskipta-, laga- og félagsvísindadeild auk frumgreina-  og  símenntunardeilda.

Að venju verða veittar viðurkenningar til nemenda sem skarað hafa fram úr í námi. Dr. Ágúst Einarsson, rektor, flytur hátíðarræðu og nemendur úr Tónlistarskóla Borgarfjarðar leika á fiðlu og píanó. Athöfnin hefst klukkan 14.00 í Hriflu og að henni lokinni verður boðið upp á léttar veitingar í hátíðarsal gamla skóla.

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri