Fréttir
30. maí 2009

Framhaldsskólanemar vinna fyrir Rannsóknamiðstöðina á Bifröst

 

Á fundi í Mími ungmennahúsi í Borgarnesi s.l. mánudag sem Ungmennaráð Borgarbyggðar stóð fyrir kom í ljós að um 10 nemendur á framhaldsskólastigi hafa ekki fengið vinnu í sumar.  

Góð umræða var á fundinum um mikilvægi sumarvinnu fyrir framhaldskólanema og mikilvægi vinnu almennt.

 

Nú hefur Háskólinn á Bifröst boðið þessum hópi verkefni og hefst sú vinna í tölvuveri Grunnskólans í Borgarnesi þriðjudaginn 2. júni kl. 17.00.

Þegar hefur verið haft samband við þá sem mættu á fundinn vegna þessa.  

 

 

Verkefnið er rannsóknarverkefni unnið fyrir Rannsóknamiðstöð Háskólans á Bifröst og er í því fólgið að hringja í fólk og spyrja spurninga í formi skoðanakönnunar og skrá svör jafnóðum í tölvu. 

Vinnutími er frá kl. 17.00 – 22.00 virka daga.

 

Framhaldsskólanemar í Borgarbyggð sem enn eru án vinnu eru hvattir til þess að skoða þetta atvinnutækifæri sem væntanlega stendur í 5-6 vikur. 

Nánari upplýsingar veitir Indriði Jósafatsson, þrótta- og æskulýðsfulltrúi í síma 433-7122 eða 898-9200, netfang indridi@borgarbyggd.is

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri