Fréttir
29. maí 2009

Menningarstjórnunin vinsæl

 

Meistaranám í menningarstjórnun er alþjóðlega samkeppnishæft nám sem veitir nemendum traustan bakgrunn í stjórnunar-, rekstrar- og menningarfræðum og býr þá undir viðamikil og oft vandasöm störf í menningarlífinu. Bifröst er eini háskólinn hér á landi sem býður upp á þessa samsetningu náms og þegar hefur sýnt sig að nemendur sem útskrifast hafa með MA gráðu í menningarstjórnun frá Bifröst takast á hendur leiðandi störf á sviði menningar og menntunar.

 

Námið er samsett stað- og fjarnám: Staðnám er stundað á Bifröst í 6 vikna vinnutörn á sumrin, en þess utan í fjarnámi.

Að loknum námskeiðahluta námsins, 60 einingum, skrifa nemendur 30 eininga lokaritgerð sem byggð er á sjálfstæðu verkefni, annaðhvort rannsókn eða verkefni sem felur í sér umtalsverða sjálfstæða áætlanagerð og skipulagningu. Skólinn skipuleggur reglulegar málstofur fyrir nemendur sem vinna að lokaritgerðum.

 

Í hópi þeirra sem nú hefja nám í menningarstjórnun á Bifröst er Þóra Tómasdóttir, einn af stjórnendum Kastljóss.

Í samtali við Vísi sagði Þóra: „Ég ætla að læra meira í heimildamyndagerð þegar ég hef tækifæri til þess, sem ég hef ekki núna, en þetta fléttast ágætlega með vinnunni." Hún segir námið í menningarstjórnun einnig góðan grunn fyrir heimildamyndagerðina, en hún er um þessar mundir að undirbúa nýja mynd um kvennalandsliðið í knattspyrnu. 

 

 



 

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri