Í tilefni sumarsins efnir Háskólinn á Bifröst til dansleikja með
hljómsveitinni Nýdanskri. Laugardaginn 30. maí leikur hljómsveitin í Sjallanum á Akureyri. Allir velkomnir, jafnt Bifrestingar sem aðrir lífsglaðir landsmenn. Gleðin hefst á miðnætti og stendur til klukkan 3. Aldurstakmark er 18 ár og aðgangseyrir 2000 krónur.