Fréttir
23. maí 2009

Útskrift úr Mætti kvenna

Útskriftarhópur í maí 2009
Laugardaginn 23. maí var útskrifað úr Mætti kvenna. Athöfnin hófst klukkan 13.30 í Hriflu.

 

Háskólinn á Bifröst hefur um árabil boðið upp á rekstrarnám í fjarnámi fyrir konur sem hafa áhuga á að bæta rekstrarþekkingu sína, Mátt kvenna I og framhaldsnámskeiðið Mátt kvenna II.

 

Markmiðið með námskeiðunum er að gera konur í atvinnurekstri hæfari til að reka fyrirtæki sín, auka arðsemi fyrirtækja, efla atvinnulíf á landsbyggðinni á þeim sviðum sem líklegust eru til að stuðla að vexti og uppbyggingu, skapa fleiri störf á landsbyggðinni og efla tengslanet kvenna.

 

Alls hafa hátt í 400 konur lokið námi í Mætti kvenna.

 

Fjöldi þeirra sem útskrifuðust að þessu sinni eru 28 nemendur úr Mætti kvenna I og 9 úr Mætti kvenna II.

 

Nám þeirra hófst með vinnuhelgi dagana 27. og 28. febrúar síðastliðinn og því lauk með því að konurnar gengu á Hraunsnefsöxl í Norðurárdal í miklu blíðvirði þann 22.maí.

 

Í haust hefst nýtt námskeið í Mætti kvenna I og Máttur kvenna II  verður haldið á vorönn 2010. Byrjað er að taka við umsóknum.

 

Umsjónarmaður símenntunar við Háskólann á Bifröst er Geirlaug Jóhannsdóttir.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri