22. maí 2009
Menntamálaráðherra heimsækir Bifröst
 |
| Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra |
Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, heimsækir Bifröst föstudaginn 22. maí. Von er á ráðherra í háskólaþorpið um hálfþrjúleytið. Katrín mun skoða svæðið, fara í kennslustund og ræða við nemendur og kennara.
Katrín hefur meistarapróf í íslenskum bókmenntum frá Háskóla Íslands. Hún varð þingmaður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs í norðurkjördæmi Reykjavíkur árið 2007 en áður hafði hún meðal annars starfað við kennslu, útgáfustörf og dagskrárgerð.
Katrín tók sæti í ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna árið 2009. Það er Bifrestingum heiður að fá ráðherra mennta- og menningarmála í heimsókn.