Fréttir
28. maí 2009

Paradísarlaut - sumarbúðir fyrir börn á Bifröst

 

 

 Í sumar verður boðið upp á þrjú tveggja vikna leikjanámskeið fyrir börn á aldrinum 6 - 13 ára  í sumarbúðunum Paradísarlaut á Bifröst. Allt nánasta umhverfi staðarins verður notað sem umgjörð fyrir spennandi og fjölbreytt viðfangsefni og leiki sem hæfa aldri og getu barnanna. Má þar nefna "Dag við vatnið", lautarferð, göngu á Grábrók, ratleik, kvöldvöku, listasmiðju, "survivor", hljóðfærasmíði, danssmiðju, spuna og stomp. Hressir og traustir leiðbeinendur sem eru vanir að umgangast börn sjá um námskeiðin. Boðið verður upp á hressingu fyrir og eftir hádegi auk hádegisverðar. Umsóknarfrestur er til 15. júní.

 

Námskeiðin verða þrjú:

 

13. júlí - 24. júlí

 

27. júlí - 7. ágúst

 

10. ágúst - 21. ágúst

 

Námskeiðin standa yfir frá 8.30 - 15.30 og kosta 19.800 krónur. Innifalið í verðinu er hádegisverður og hressing fyrir og eftir hádegi. skráning fer fram á bifrost@bifrost.is

 

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri