17. maí 2009
Bryndís Hlöðversdóttir talar á málefnafundi Siðfræðistofnunar HÍ
Siðfræðistofnun Háskóla Íslands efnir til málefnafundar mánudaginn 18. maí klukkan 12.00 í stofu 101 í Odda. Fjallað verður um uppgjör þjóða og hvað þurfi til að sættir náist í samfélagi eftir átök eða hrun.
Bryndís Hlöðversdóttir, forseti lagadeildar Háskólans á Bifröst, kallar erindi sitt: Stjórnskipanin, hvar byrjum við - hvert stefnum við? Bryndís fjallar um hvaða lagalega umhverfi þurfi til að sættir geti orðið og að hægt sé að byrja á nýjum grunni.
Aðrir frummælendur eru Sigurður Árni Þórðarson, prestur í Neskirkju og Árni Bergmann rithöfundur og fyrrverandi ritstjóri.
Sigurður Árni spyr hvort fyrirgefa eigi kreppudólgum í erindi sem fjallar um eðli fyrirgefningarinnar, aðila hennar og það sáttaferli sem hún byggir á.
Árni Bergmann talar um hvernig afneitun ráðamanna geti torveldað uppgjör í erindi sem hann nefnir: Uppgjör, afneitun og pólitík.
Fundurinn er öllum opinn. Fundarstjóri verður Vilhjálmur Árnason, prófessor.