Fréttir
8. júní 2009

Sumardvöl fyrir heldri borgara í júní - fræðsla, skemmtun og útivist

Háskólinn á Bifröst býður aldurshópnum 60+ upp á 5 daga dvöl á Bifröst dagana 8.-12.  júní þar sem áhersla verður lögð á fræðslu, skemmtun og útivist í einstöku umhverfi skólans í Borgarfirði.

 

 

Markmiðið er að þátttakendur njóti fjölbreyttrar dagskrár með fræðsluerindum og ráðgjöf um ýmis brýn málefni líðandi stundar.  Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra setur dagskrána.  Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, kemur einnig í heimsókn og fjallar um stöðuna í efnahagsmálum.  Boðið verður upp á fyrirlestra á degi hverjum þar sem færustu sérfræðingar halda erindi:

 

  • Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst fjallar um framtíðarhorfur í íslensku efnahagslífi
  • Bryndís Hlöðversdóttir, forseti lagadeildar fjallar um stjórnlagaþing
  • Jón Ólafsson, forseti félagsvísindadeildar fjallar um hvernig byggja megi réttlátara samfélag
  • Ásta Dís Óladóttir, forseti viðskiptadeildar fjallar um framtíðarhorfur í íslensku fjármálalífi og fjármálaráðgjöf fylgir í kjölfarið
  • Eiríkur Bergmann Einarsson, dósent og forstöðumaður Evrópufræðaseturs fjallar um kosti og galla inngöngu Íslands í Evrópusambandið
  • Lára V. Júlíusdóttir, hrl. og stundakennari við Háskólann á Bifröst fjallar um almannatryggingar og réttindi eldri borgara
  • Sr. Elínborg Sturludóttir, sóknarprestur í Stafholti, fjallar um lífsgleði og lífsgæði á óvissutímum 

 

Boðið verður upp á skoðunarferð um Borgarfjörð þar sem m.a. Reykholt og Landnámssetur Íslands verða heimsótt.

Mikil áhersla verður lögð á fjölbreytta hreyfingu og útivist þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi, s.s. göngutúra, morgunleikfimi og golf á golfvellinum Glanna.  Gunnar Þórðarson, tónskáld, mun troða upp á kvöldvöku og síðasta kvöldið verður haldinn harmónikkudansleikur í hátíðarsal skólans. Þátttakendum stendur til boða að nýta alla þjónustu háskólans, m.a. bókasafn, líkamsræktaraðstöðu, pottasvæði og kaffihús.

 

Nánar um dagskrá Heldra lífs. 

Innifalið í þátttökugjöldum er  gisting í stúdíóíbúðum og fullt fæði ásamt aðgangi að allri dagskrá og skoðunarferðum.

 

Verð fyrir 1 í herbergi er kr. 11.000 dagurinn, samtals kr. 55.000 fyrir 5 daga.

Verð fyrir 2 í herbergi er kr. 9.000 dagurinn, samtals kr. 90.000 fyrir 5 daga.

 

Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér möguleika á styrkjum hjá fræðslusjóðum stéttarfélaganna.

 

Skráning fer fram í síma 433-3000 og með því að smella hér.


Allar nánari upplýsingar veitir Geirlaug Jóhannsdóttir í síma 433-3015 /  893-8960 og með tölvupósti geirlaug@bifrost.is .

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri