15. júní 2009
Eva Joly aðalfyrirlesari á ráðstefnu EWLA - skráning hér
Árleg ráðstefna evrópskra kvenlögfræðinga (EWLA) verður haldin í Reykjavík 3. og 4. júlí næstkomandi. Samtökin, sem stofnuð voru aldamótaárið 2000 teygja anga sína víða um Evrópu en þau voru stofnuð í Brussel árið 2000 og var einn stofnenda Cherie Blair mannréttindalögmaður og eiginkona þáverandi forsætisráðherra Breta. EWLA er samstarfsvettvangur kvenlögfræðinga í Evrópu en markmið samtakanna er að hafa áhrif á löggjöf og stjórnmál í aðildarríkjum Evrópusambandsins og EES ríkjunum frá sjónarhóli jafnréttis kynjanna. Aðild að EWLA eiga samtök kvenna í lögmennsku, félög lögfræðinga, lögfræðingar og laganemar.
Þema ráðstefnunnar í ár er Mannréttindi og fjármálamarkaðir og aðalfyrirlesari er Eva Joly norsk/franski dómarinn sem íslensk stjórnvöld hafa fengið sem ráðgjafa. Hún hefur einnig verið ráðgjafi norskra stjórnvalda en vakti athygli um alla Evrópu þegar hún var fengin af frönskum yfirvöldum til að rannsaka milljarða evru hneykslið sem franska ríkisrekna olíufyrirtækið Elf var flækt í. Eva Joly sætti hótunum á meðan rannsókninni stóð; henni var hótað lífláti, sími hennar var hleraður og brotist var inn á heimili hennar og skrifstofur. Í kjölfar rannsóknarinnar sem Eva Joly stýrði voru 30 manns sakfelldir en í málið flæktust aðilar úr ríkisstjórn Frakklands.
Einnig er von á lykilfyrirlesara frá Bandaríkjunum og fleirum, sem ekki fæst staðfest enn þá.
Dagskrá ráðstefnunnar er á heimasíðu samtakanna www.ewla.org og einnig á heimasíðu háskólans á Bifröst þar sem unnt er að skrá sig til þátttöku en varaforseti EWLA frá 2005 er Dr. Herdís Þorgeirsdóttir prófessor.
Ráðstefnan er öllum opin sem láta sig löggjöf, pólitík og jafnréttismál einhverju varða.