9. maí 2009
Dr. Marina Papanastassiou ráðin prófessor við viðskiptadeild Háskólans á Bifröst.
Marina Papanastassiou útskrifaðist með doktorsgráðu í alþjóðaviðskiptum frá Reading University árið 1995. Marina gegnir stöðu prófessors við American College of Greece og stöðu rannsóknarprófessors við Department of Economics and International Business við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn. Undanfarin ár hefur Marina einnig stundað rannsóknir við East Mediterranean Center for International Business and Culture, College of Management í Ísrael og við Cambridge háskóla ásamt því að vinna ýmis ráðgjafarstörf fyrir stjórnvöld m.a í Grikklandi. Dr. Marina Papanastassiou hefur skrifað fjölmargar greinar í virt ritrýnd tímarit, bókakafla og bækur um alþjóðleg viðskipti og lagt sérstaka áherslu á vaxandi hagkerfi undanfarin ár. Hún hefur einnig verið ritrýnir við fjölmörg erlend tímarit.
Það er mikill fengur að fá Dr. Marinu Papanastassiou til liðs við Háskólann á Bifröst en hún mun m.a kenna í meistaranáminu og stunda rannsóknir við skólann.