7. maí 2009
Gistiheimili á Bifröst í sumar
 |
| Hamragarðar |
Gistiheimili verður starfrækt á Bifröst á tímabilinu 15. júní til 15. ágúst í sumar. Til leigu eru rúmgóðar stúdíóíbúðir í Hamragörðum, í miðju háskólaþorpinu. Íbúðirnar eru með eldhúskróki og baði og þráðlausu netsambandi.
Morgunverður er innifalinn í gistingu og er hann borinn fram á Kaffi Bifröst. Þar er líka boðið upp á úrval léttra rétta af matseðli, rétt dagsins í hádeginu, súpu, brauð- og salatbar, barþjónustu og fleira.
Gestir gistiheimilisins hafa frían aðgang að líkamsræktarstöð í háskólaþorpinu, heitum pottum, gufubaði og tómstundaherbergi með pool- og borðtennisborðum.
Í miðju þorpinu er lítill og skemmtilegur barnaleikvöllur, fótboltavöllur og golfvöllurinn Glanni eru í göngufæri og ótal skemmtilegar gönguleiðir er að finna í nágrenninu. Stór og glæsileg Samkaupsverslun, með mat og ýmsa smávöru, er í háskólaþorpinu.
Í Borgarfirði er að finna fjölbreytta möguleika til útivistar og styttri ferðalaga. Bifröst er því kjörinn staður til að slaka á og njóta náttúrufegurðar og menningar í héraðinu.
Verð fyrir gistingu í tveggja manna herbergi með morgunverði er 12.800 krónur og 7.900 krónur fyrir einn. Bóka má herbergi með tölvupósti gistiheimili@bifrost.is eða í síma 433 3000 á skrifstofutíma og 435 0101 milli klukkan 16:00 og 22:00. Einnig má bóka með faxi; 433 3001 / 435 0102.
Félagar í Hollvinasamtökum Háskólans á Bifröst fá 10% afslátt af gistingu.