Fréttir
7. maí 2009

Frumgreinadeild veitir undirbúning fyrir háskólanám á Bifröst

 

Kennsla í frumgreinadeild fer að mestu fram í sal sem kallast Aðalból
Frumgreinadeild er ætluð þeim sem ekki fullnægja inntökuskilyrðum um stúdentspróf og öðrum sem  vilja styrkja umsókn sína um nám á Bifröst með eins árs undirbúningi. Nám í frumgreinadeild er skilgreint sem nám á framhaldsskólastigi og er lánshæft samkvæmt reglum Lánasjóðs íslenskra námsmanna.

 

Góð aðsókn er að námi við  frumgreinadeild en enn eru nokkur sæti laus í deildinni.  Námið má stunda annaðhvort í stað- eða  fjarnámi.  Lögð er áhersla á kennslu í ensku, stærðfræði, bókhaldi og upplýsingatækni. Auk þess er kennd hagfræði, stjórnmálafræði, lögfræði, íslenska og heimspeki.  Danska sem lagamál er í boði, einkum fyrir þá nemendur sem hyggja á nám í viðskiptalögfræði.

 

Kennsluárinu í staðnámi er skipt í tvö 14 vikna misseri auk 9 vikna sumarannar. Regluleg kennsla stendur samtals í 13  vikur á hvoru misseri og próf taka eina viku. Á sumarönn er prófað eftir hverja lotu en loturnar eru þrjár. Á haustmisseri er fyrsta vika misserisins nýtt til kynningar og undirbúnings fyrir nám og störf á Bifröst. 

 

Fjarnámið fer fram í lotum þar sem hver námsgrein er kennd í 6 vikur. Lagðir eru fram 2 - 3 fyrirlestrar á viku og 1 - 2 verkefni. Mikil áhersla er lögð á verkefnavinnu og vinna nemendur einstaklings- , para-  og hópverkefni líkt og í staðnáminu. Í hverri lotu er vinnuhelgi þar sem nemendur koma á Bifröst og hitta aðra nemendur, hlýða á fyrirlestra og vinna að verkefnum. Hverri lotu lýkur svo með lokaprófi í viðkomandi námsgrein, á viðurkenndum prófstöðvum vítt og breitt um landið en að öðru leyti fer námið alfarið fram í gegnum fjarnámsvef háskólans. Fjarnám við frumgreinadeild sem lokið er á einu ári  er  lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna.

 

Gert er ráð fyrir að umsækjendur um nám í frumgreinadeild hafi lokið 90 einingum á framhaldsskólastigi og mælst er til að þeir hafi lokið ensku og stærðfræði 103 og 203  eða sambærilegu námi.  Umsækjendur sem orðnir eru 25 ára eiga möguleika á því að fá starfsreynslu metna að hluta og ganga þeir almennt fyrir við inntöku í deildina.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri