5. maí 2009
Ráðstefna um íslenska þjóðfélagsfræði
Ráðstefna um íslenska þjóðfélagsfræði verður haldin í Háskólanum á Akureyri dagana 8. og 9. maí næstkomandi. Í hópi fyrirlesara verða allnokkrir fræðimenn frá Háskólanum á Bifröst. Njörður Sigurjónsson, lektor, fjallar um fegurð og félagsrannsóknir á málstofu um aðferðir og rannsóknir; Ian Watson, lektor, fjallar um sögu íslenskra persónueinkenna á málstofu um fjölmiðla og samfélag; Eva Heiða Önnudóttir fjallar annars vegar um hvort innflytjendur séu í samkeppni við Íslendinga (málstofa um vinnumarkað og atvinnulíf) og hins vegar um óánægða lýðræðissinna á málstofu um stjórnmál. Á sömu málstofu talar Jón Ólafsson, prófessor, um Veru Hertzch og Gúlagið. Af Bifrestingum ber loks að nefna Sigrúnu Lilju Einarsdóttur, meistaranema í menningarstjórnun, en hún greinir frá rannsókn sinni á viðhorfum kórmeðlima til þátttöku í kórstarfi á Íslandi.
Dagskrá ráðstefnunnar er að finna hér.