6. maí 2009
Háskólinn á Bifröst fær úthlutun úr Orkurannsóknasjóði Orkuveitunnar
Viðskiptadeild Háskólans á Bifröst fékk úthlutun úr Orkurannsóknasjóði Orkuveitunnar með rannsóknarverkefnið -Arðbært atvinnulíf á Íslandi í sátt við umhverfið.
Megináherslan í verkefninu er að finna leiðir til þess byggja upp arðbært atvinnulíf með vexti í iðnaði án þess að fara á svig við lög og reglur varðandi loftslagsmengun og verður þá sérstaklega litið til alþjóðlegra loftlagssamninga og Kyoto bókunarinnar sem Ísland hefur skuldbundið sig til.
Meginmarkmið rannsóknarinnar er að svara því hvaða leiðir séu mögulegar til að stuðla að áframhaldandi uppbyggingu arðbærs atvinnulífs á Íslandi og um leið hámarka framleiðslugetu iðnfyrirtækja án þess að það komið niður á markmiðum alþjóðlegra loftslagssamninga sem Ísland hefur skuldbindið sig til er varðar útblástur CO2. Til að hámarka framleiðslu stóriðju og iðnaðar þarf að finna leiðir til þess að koma til móts við þau höft sem Kyoto bókunin setur um útblástur gróðurhúsalofttegunda (CO2). Mikilvægt er að finna leiðir sem Ísland getur beitt til þess að auka sínar kolefnisheimildir.
Í verkefninu verður farið yfir helstu ákvæði alþjóðlegra loftlagssamninga og annarra laga og reglna sem gilda um útblástur gróðurhúsalofttegunda er snúa að atvinnulífinu. Fjallað verður um þær leiðir sem farið hefur verið erlendis í þessum efnum. Skoðað verður hvernig helstu iðnfyrirtæki landsins hafa staðið að þessum málum og hver sýn þeirra á framtíðina er hvað þau varðar.