Fréttir
13. maí 2009

Rannsóknaráðstefna á Bifröst 13. maí

Miðvikudaginn 13. maí frá klukkan 12.30 til 16.00 verður haldin ráðstefna á Bifröst helguð rannsóknastarfi við skólann. Frummælendur úr viðskipta-, laga- og félagsvísindadeild gera grein fyrir rannsóknarviðfangsefnum sínum og  leggja áherslu á aðferðir og samstarf á milli greina sem stundaðar eru á Bifröst.

 

Lögð verður áhersla á að skapa umræður um ólíkar nálganir á fjölbreytilegum fræðasviðum og ræða hvernig aðferðir hinna ólíku nálgana virka. Þá verður velt upp hugmyndum um samvinnu á milli ólíkra greina og þeim vandamálum og möguleikum sem skapast við samstarf.

 

Tilgangurinn með ráðstefnunni er að vekja athygli á rannsóknum við Háskólann á Bifröst og efla umræðu á milli fræðasviða um stöðu og framtíð rannsókna við skólann.

 

Allir eru velkomnir og nemendur eru sérstaklega hvattir til þess að mæta.

 

 

Dagskrá:

 

12.30     Ágúst Einarsson, rektor setur ráðstefnuna

 

12.35     Elín Blöndal, prófessor við lagadeild :

Þverfagleg verkefni Rannsóknaseturs vinnuréttar:  Kynjajafnrétti, samfélagsleg ábyrgð og Jafnréttiskennitalan

 

13.00     Bryndís Hlöðversdóttir, forseti lagadeildar:

Eftirlitshlutverk þjóðþinga: Lagaumgjörð og framkvæmd á Íslandi, í Danmörku, Noregi og Svíþjóð

 

13.25     Ásta Dís Óladóttir, forseti viðskiptadeildar:

Fjölbreytileiki stjórna, hefur slíkt nokkur áhrif?

 

13.50     Jón Ólafsson, forseti félagsvísindadeildar:

Hvað er sannleikur?

 

14.15     Kaffi

14.30     Ingibjörg Þorsteinsdóttir, dósent í lagadeild:

Af hreinni lögfræði og óhreinni

 

14.55     Eiríkur Bergmann Einarsson, dósent í félagsvísindadeild

Sjálfstæðisbaráttan eilífa: Áhrif þjóðernishugmynda á utanríkisstefnu Íslands

 

15.20     Einar Svansson, aðjúnkt í viðskiptadeild:

 Orðræðugreining með tölfræði

 

15.45     Njörður Sigurjónsson, lektor í félagsvísindadeild:

 Hvaðan koma hugmyndir um rannsóknir í Norðurárdal?    

 

16.00     Dagskrárlok 

 

 

Ráðstefnan verður haldin í Hriflu, miðvikudaginn 13. maí 2009 frá klukkan 12.30 til 16.00 og fundarstjóri er Njörður Sigurjónsson lektor í félagsvísindadeild.   

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri