30. apríl 2009
Mentor hlýtur vaxtarsprotann 2009
|
|
|
Vaxtarsprotinn er viðurkenning fyrir öfluga uppbyggingu sprotafyrirtækis sem veitt er á vegum Samtaka iðnaðarins, Rannsóknamiðstöðvar Íslands og Háskólans í Reykjavík. Tilgangurinn með veitingu hans er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa þannig aukinn áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja. Upplýsingakerfið Mentor.is er þróað á Íslandi en fyrirtækið starfar einnig í Svíþjóð undir nafninu InfoMentor P.O.D.B og í Englandi. Á næstu vikum munu skólar í Sviss bætast í hóp notenda, enda eru mikil tækifæri að opnast á markaði í Evrópu.
Tækifæri Mentors á erlendum markaði byggir á sterkri stöðu íslenska skólakerfisins. Íslenskir skólar eru mjög framarlega er kemur að tölvuvæðingu og tölvunotkun auk þess sem netnotkun foreldra er með því mesta sem þekkist í heiminum. Íslenskir skólastjórnendur og kennarar eru kröfuharðir notendur sem gera miklar kröfur til Mentors varðandi hönnun, einfaldleika og notagildi. Afrakstur þróunar fyrir íslenska skóla skilar Mentor.is kerfinu meðal fremstu kerfa í Evrópu er kemur að upplýsingakerfum fyrir skóla.
|
Það var Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, sem veitti Vilborgu Einarsdóttur framkvæmdastjóra og stofnanda Mentor og Ástu Dís Óladóttur stjórnarformanni félagsins ásamt öðrum starfsmönnum fyrirtækisins Vaxtarsprotann 2009 að viðstöddum fulltrúum sprotafyrirtækja og stuðningsaðila atvinnulífsins í Grasagarðinum Laugardal við hátíðlega athöfn. Þess ber að geta að þetta er annað árið í röð sem Mentor hlýtur vaxtarsprotann.