30. apríl 2009
Nýtt fjármálakerfi? - Hvað þarf að breytast? Málstofa
Það hefur ekki farið framhjá neinum að fjármálakerfið á Íslandi hrundi í október 2008. Margir spyrja sig hvað taki við?
Ljóst er að breytinga er þörf, en hver á að leiða breytingarnar? Er hægt að breyta fjármálafyrirtækjum innan frá?
Margir spyrja sig einnig hvort hægt sé að hugsa til langs tíma við þessar aðstæður og hvort að það borgi sig yfir höfuð að spara.
Í málstofu þriðjudaginn 5. maí kl 13:30 mun Þóranna Jónsdóttir frá Auði Capital fjalla um uppbyggingu fjármálageira til framtíðar og kynna nýjustu afurð Auðar – FramtíðarAuði – séreign.
Við vonumst til að sjá sem flesta taka þátt í umræðum um þetta málefni kl. 13.30 þriðjudaginn 5. mai. Málstofan verður í Hriflu.
Auður Capital