Fréttir
30. apríl 2009

Greinasöfn dr. Ágústar Einarssonar aðgengileg á vef Háskólans á Bifröst

Dr. Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst
Greinasöfn dr. Ágústar Einarssonar, rektors, sem út komu á árunum  2007 og 2008 eru nú aðgengileg á vef Háskólans á Bifröst. Greinarnar eru valdar þannig að þær gefi heildstæða mynd af þeim álitaefnum sem voru uppi á hverjum tíma.

 

Í  „Greinasafn – fyrra bindi“  sem út kom árið 2007 er umfjöllun um tvo meginflokka, stjórnmál annars vegar og menningu og menntun hins vegar. Í fyrri hluta bókarinnar er fjallað um stjórnmál í fimm undirköflum sem bera heitin Almennt, Samfylkingin; aðdragandi og stofnun, Á leið í Evrópusambandið, Leiðarar í Alþýðublaðinu og Þingmál. Síðari hluti bókarinnar fjallar um menningu og menntun.

Greinasafn - Fyrra bindi er 472 blaðsíður. Útgefandi er Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands.

 

 „Greinasafn – síðara bindi“ kom út árið 2008. Bókin skiptist í þrjá kafla. Í fyrsta kaflanum er fjallað um efnahagsmál, hagfræði þeirra, eins og  markaðshagfræði, hlutabréfamarkað og smásölu auk umfjöllunar um Seðlabanka Íslands en höfundur var formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands. Annar kafli þessa bindis fjallar sjávarútvegsmál, fiskmarkaði og hagfræði sjávarútvegs eins og afkomumælingar í sjávarútvegi og hagkvæmustu ráðstöfun aflakvóta innan fyrirtækis. Í þriðja kafla bókarinnar er m.a. fjallað um heilsuhagfræði, Kína, byggðamál, menningu, kvikmyndir og landbúnað. Að lokum eru birtar stuttar frásagnir, svipmyndir, úr íslensku atvinnulífi, sem lýsa vel breytingum í samfélagi okkar undanfarin ár og áratugi.

Greinasafn - Síðara bindi er 450 blaðsíður. Útgefandi er Háskólinn á Bifröst.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri