Fréttir
28. apríl 2009

Nemendum umbunað fyrir að útvega nýja nemendur

 

 

Á fundi rektors með nemendum í gær, 24. apríl, kynnti rektor eftirfarandi ákvörðun skólayfirvalda en hugmyndin að þessu fyrirkomulagi kom upphaflega frá fulltrúum nemenda í háskólaráði.

 

Háskólinn á Bifröst hefur á að skipa úrvals nemendum og glæstri sögu. Ekki er óalgengt að margar kynslóðir sömu fjölskyldu hafi stundað nám við skólann. Nemendur á hverjum tíma hafa ávallt verið bestu fulltrúar skólans gagnvart nýjum nemendum. Kannarnir hafa sýnt að nýir nemendur koma til náms á Bifröst einkum vegna mikillar ánægju núverandi og fyrrverandi nemenda með skólastarfið.

 

 Þess vegna hafa skólayfirvöld ákveðið að verja fjármagni til nemenda í stað þess að eyða í dýrar auglýsingaherferðir. Með því að ráðstafa hluta af því sem ætlað var í markaðsmál til nemenda njóta nemendur góðs af.

 

Þannig verður hverjum nemanda sem stuðlar að því að nýr nemandi sækir um skólavist og fær inngöngu í háskóladeildir eða frumgreinadeild í sumar eða haust og hefur fullt nám við skólann á Bifröst umbunað með greiðslu upp á 65.000 kr. sem verður greitt um miðjan desember á þessu ári.

 

Þetta er liður í innri markaðssetningu skólans og tengir nemendur með ótvíræðum hætti við kynningarmál enda eru núverandi nemendur helsti mannauður Háskólans á Bifröst. Þetta fyrirkomulag er til að örva umsóknir góðra nemenda að skólanum. Háskólinn á Bifröst er með ströng skilyrði við inntöku og verður þeim í engu breytt en með þessari leið telja skólayfirvöld að aðsókn góðra nemenda sem koma fyrir milligöngu núverandi nemenda aukist.

 

 

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri