22. apríl 2009
Bókin Hvað með evruna? er komin á vefinn
Háskólinn á Bifröst gaf á síðastliðnu ári út bókina Hvað með evruna? eftir Eirík Bergmann Einarsson, dósent í stjórnmálafræði, og Jón Þór Sturluson, dósent í hagfræði. Bókin er afrakstur tveggja ára rannsóknar sem gerð var að ósk Alþýðusambands Íslands og Samtaka iðnaðarins. Í bókinni eru helstu álitamál varðandi hugsanlega innleiðingu evru á Íslandi greind á einfaldan og aðgengilegan hátt. Fjallað er um myntsamruna í Evrópu og skoðað hvaða áhrif innganga í Evrópusambandið og upptaka evru hefðu á íslenskt efnahagslíf og samfélag.
Bókin er uppseld hjá útgefanda en hefur nú verið gerð aðgengileg á vef Háskólans á Bifröst undir liðnum Rannsóknastarf - Útgefið efni.