22. apríl 2009
Nýsköpunarstyrkur til rannsókna í ferðaþjónustu
 |
| Einar Svansson, aðjúnkt í viðskiptadeild |
Einar Svansson, aðjúnkt í viðskiptadeild Háskólans á Bifröst, hefur hlotið styrk frá Norræna nýsköpunarsjóðnum til rannsókna á íslenskri ferðaþjónustu. Rannsóknin heitir “Today’s lead user is tomorrow’s mainstream tourist” og er samnorræn með þátttöku Íslands, Noregs, Danmerkur, Lettlands og Eistlands sem stýrir rannsókninni. Tilgangur rannsóknarinnar er að skoða leiðandi fyrirtæki í ferðaþjónustu á Norðurlöndum og nýta þær fyrirmyndir til að vísa veginn fyrir nýsköpun á næstu árum. Lykilspurningin er: ,,Munu Norðurlöndin geta þróað viðskiptamódel og þjónustu sem snýst um að skapa varanlegri þekkingu og hæfni en þá sem felst í því að byggja upp ferðamannastaði og reka einstök hótel og heilsulindir og ná frekar varanlegri kjarnahæfni í stjórnun nýsköpunar sem byggir á framúrskarandi nýsköpunarferlum?”
Uppistaðan í gagnaöflun felst í því að velja í hverju landi áhugaverð fyrirtæki í fararbroddi nýsköpunar í ferðaþjónustu og lýsa þeim dæmum ítarlega með raundæmisrannsókn (case-study). Rannsóknin er þríþætt; Í fyrsta lagi verður gerð grein fyrir hlutverki þessara fyrirtækja og viðskiptavina þeirra í þróun nýrra arðbærra tækifæra. Í öðru lagi verður flokkunarkerfi og skilgreiningar í ferðaþjónustu endurbætt til að bæta kennslu og nýsköpun í norrænni ferðaþjónustu, ráðgjöf og í opinberri stefnumótun. Í þriðja lagi á verkefnið að skapa umræðu og hvatningu fyrir aukna nýsköpun vöru og þjónustuhugmynda í norrænni ferðaþjónustu. Næsta skref er að velja þau íslensku fyrirtæki sem notuð verða sem dæmi.
Vinna við rannsóknina mun hefjast í sumar og gert er ráð fyrir að verkefninu ljúki árið 2010.