28. apríl 2009
Gunnar Þórðarson á háskólatónleikum
Gunnar Þórðarson kemur fram á háskólatónleikum á Bifröst miðvikudaginn 29. apríl næstkomandi. Tónleikarnir verða á Kaffi Bifröst og hefjast klukkan 17.00.
Gunnar er einn afkastamesti tónlistarhöfundur Íslendinga og hefur samið bæði dægurlög og sígilda tónlist.
Hann er einn af stofnendum hljómsveitarinnar Hljómar sem var stofnuð árið 1963 og varð hún fljótlega vinsælasta hljómsveit Íslands. Hljómar gáfu út 2 breiðskífur og nokkrar minni og voru flestar tónsmíðar á þeim eftir Gunnar. Hljómar störfuðu frá árinu 1963-1969.
Hljómsveitin Trúbrot var stofnuð árið 1969 og starfaði Gunnar í þeirri hljómsveit til ársins 1973. Þá sagði Gunnar sig úr hljómsveitinni vegna þáttöku í þriggja mánaða hljómleikaferð með Ríó Tríóinu um Bandaríki Norður- Ameríku.
Árið 1975 flutti Gunnar til Englands og dvaldi þar í tvö ár við upptökur á íslenskum hljómplötum. Árið 1977 flutti hann heim og vann sem upptökustjóri og útsetjari á fjölda hljómplatna. Árið 1979 flutti Gunnar til New York og dvaldi þar í eitt ár og síðan í Los Angeles í hálft ár við upptökur á sólóplötu. Gunnar flutti heim árið 1980 og hélt áfram að semja tónlist og stjórna upptökum á fjölda hljómplatna s.s. Þú og Ég plötunni “Ljúfa líf”, sólóplötu sinni “Himinn og jörð”, ”Íslensk alþýðulög” o.fl., o.fl.
Árið 1982 varð Gunnar hljómsveitarstjóri á Broadway hefur sett upp fjölmargar sýningar þar ásamt Agli Eðvarðssyni, s.s. Ríó, Gunnar Þórðarson, Hljómar, Magnús Eiríksson, Bítlaárin, Abba, BeeGees, Queen, Rolling Stones, og margar fleiri. Árið 1986 gerði Gunnar sólóplötu númer fjögur “Borgarbragur” og einnig tvöfalda albúmið “Reykjavíkurflugur”. Ári seinna kom fimmta sólóplatan “Í loftinu” og þar heyrðist fyrst að Gunnar var farin að fást við klassíska músik.
Árið 1998 stofnaði Gunnar ásamt Birni Thoroddsen og Jóni Rafnssyni tríóið “Guitar Islancio”. Hafa þeir félagar sent frá sér fjóra geisladiska með eigin útsetningum á íslenskri þjóðlagatónlist. Árið 2000, þann 1. janúar var frumflutt “Heilög messa” fyrir hljómsveit, kór og einsöngvara eftir Gunnar.
Gunnar hefur samið tónlist við dramatískar myndir fyrir sjónvarp og fyrir kvikmyndir og söngleiki.
Á tónleikunum á Bifröst verður Gunnar einn með gítarinn og flytur lög af 45 ára tónlistarferli. Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis.