22. apríl 2009
Opinn dagur í Háskólanum á Bifröst sumardaginn fyrsta

Sumardaginn fyrsta, þann 23. apríl næstkomandi, verður að vanda opinn dagur í Háskólanum á Bifröst.
Nemendur, kennarar og annað starfsfólk kynna starf skólans og sýning verður á verkefnum nemenda.
Boðið verður upp á skoðunarferðir undir leiðsögn nemenda um háskólaþorpið og íbúðir á stúdentagörðum verða til sýnis. Líkamsræktarstöðin og pottasvæðið opið.
Nemendafélagið kynnir hið fjölbreytta félagsstarf sem unnið er á Bifröst.
Deildarleikar Bifrastar verða haldnir sama dag en þá verður keppt í ýmsum íþróttagreinum (sexþraut). Keppnisgreinar eru fótbolti, körfubolti, kúluvarp, skjalatösku- og hælahlaup, víkingaspilið Kubbur og skotbolti.
Fyrir sigur í hverri grein fær viðkomandi lið þrjú stig en liðið í öðru sæti fær eitt stig. Að lokum verða stigin talin og deildameistarar 2009 krýndir. Fimm lið taka þátt í keppninni; lið viðskipta-, laga-, félagsvísinda- og frumgreinadeilda auk liðs meistaranema.
Boðið verður upp á vöfflukaffi og ís og miða í Hvalfjarðargöngin fyrir heimleiðina. Leiktæki fyrir börnin verða á háskólatorgi og þau geta farið á hestbak í umsjón fullorðinna.
Dagskráin stendur frá klukkan 14.00 - 17.00. Allir velkomnir.