Fréttir
15. apríl 2009

Lokaskýrsla Jafnréttiskennitölunnar

 

Rannsóknasetur vinnuréttar hefur gefið út lokaskýrslu Jafnréttiskennitölunnar. Skýrslan geymir yfirlit yfir helstu þætti verkefnisins og niðurstöður þess. 

 

Verkefnið var þríþætt, en meginstoð þess var árleg birting tiltekinna upplýsinga um stöðu kynjajafnréttis í stærstu fyrirtækjunum hér á landi. Því til viðbótar fólst í verkefninu athugun á frekari mælikvörðum á jafnrétti og loks mótun svonefndrar Jafnréttiskennitölu sem gefa skyldi til kynna hver staða kynjajafnréttis væri innan fyrirtækja.

 

Eins og fram kemur í lokakafla skýrslunnar hefur verkefnið um Jafnréttiskennitöluna án vafa stuðlað að aukinni vitund í atvinnulífinu og víðar um mikilvægi þess að gætt sé að kynjahlutföllum í stjórnum og meðal stjórnenda fyrirtækja. Í umræðum og fræðilegri umfjöllun um kynjajafnrétti í fyrirtækjum er afar oft vísað til Jafnréttiskennitölunnar og niðurstaðna í árlegum könnunum Rannsóknasetursins á grundvelli verkefnisins. Erlendir rannsóknaraðilar og alþjóðastofnanir hafa einnig sóst eftir upplýsingum um það. Þá hefur þeirri skoðun vaxið fylgi hér á landi að það sé fyrirtækjum í hag að tryggja fjölbreytni í stjórnum og æðstu stjórnunaraðstöðum.

 

Samstarfs- og styrktaraðilar verkefnisins um Jafnréttiskennitöluna voru viðskiptaráðuneytið, iðnaðarráðuneytið, Samtök atvinnulífsins, Samtök kvenna í atvinnurekstri, Jafnréttisráð og Jafnréttisstofa. Þá veittu Inn-fjárfesting og Baugur Group ehf. styrki til verkefnisins árið 2008.

 

Forstöðumaður Rannsóknaseturs vinnuréttar er Elín Blöndal, prófessor við lagadeild Háskólans á Bifröst.

 

Lokaskýrslan

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri