Fréttir
15. apríl 2009

Opin málstofa meistaranema í lagadeild

Meistaranemar í lögfræði standa fyrir opinni málstofu þriðjudaginn 21. apríl nk. kl. 11-12 í meistarastofu. Yfirskrift málstofunnar er Aflaheimildir og eignarréttur. Fjallað verður um eignarréttarleg álitaefni varðandi fiskveiðiheimildir og einnig um auðlindaákvæði frumvarps til stjórnarskipunarlaga sem nú liggur fyrir Alþingi.

 

Nemendur munu flytja stutta framsögu og taka þátt í pallborðsumræðum.

 

Málstofan er öllum opin

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri