Fréttir
27. apríl 2009

Prisma hefst í dag, 27. apríl

 

Prisma hefst í dag, mánudaginn 27. apríl, kl. 12.30 í Hlíðasmára 3 í
Kópavogi. Þrjátíu og átta nemendur eru skráðir að þessu sinni.

Sem fyrr er nemendahópurinn fjölbreyttur með tilliti til aldurs, menntunar og reynslu. Yfir 40 fyrirlesarar víðsvegar að úr samfélaginu koma að kennslu og í þetta sinn varir Prisma í 6 vikur og er metið til 12 eininga (ECTS) á háskólastigi.

 

 

Prisma er nýtt þverfaglegt diplómanám sem Listaháskóli Íslands og Háskólinn á Bifröst hafa skipulagt í samvinnu við Reykjavíkur Akademíuna. Kennt verður í Hlíðarsmára 3 í Kópavogi á annarri hæð, í húsnæði sem Eimskip lánar endurgjaldslaust til námsins.

 

 

  • Um 70 nemendur útskrifuðust með 16 eininga (ECTS) diplómagráðu frá Prisma 27. síðastliðinn.
  • Eftirspurn eftir Prisma mikil
  • Fjöldi hugmynda og spennandi verkefna hafa sprottið upp í náminu
  • Um 40 sérfræðingar víðsvegar að úr samfélaginu koma að kennslu
  • Burðarfögin í náminu eru heimspeki og listfræði. Fjölmörg önnur fög þræðast inn í kennsluna eins og til dæmis mannfræði, markaðsfræði, hönnun, tónmiðlun, menningarfræði, stjórnun, frumkvöðlafræði, arkitektúr og skipulag, ímyndafræði, skapandi skrif og miðlunarfræði

 

 

 

Metaðsókn var í Prisma sem hófst 2. febrúar og lauk 27. mars. Yfir hundrað nemendur sóttu um í námið og var bæði andinn og afraksturinn í náminu verið framar vonum. Námið var skipulagt sem viðbrögð háskólanna við ástandinu í landinu.  Í fyrsta nemendahópnum voru einstaklingar sem úr fjármálageiranum, viðskiptum og verslun, grafískri hönnun, arkitektúr, myndlist, leiklist, fyrirtækjarekstri, kennslu osfrv.

 

Námsgjald í Prisma er 110.000 krónur og geta nemendur sótt um niðurgreiðslu á skólagjöldum frá stéttarfélögum, fagfélögum og Vinnumálastofnun. Sem dæmi greiðir Blaðamannafélagið 100% skólagjöld fyrir atvinnulausa félagsmenn, VR niðurgreiðir 50-70% af skólagjöldum fyrir félagsmenn að gefnum ákveðnum skilyrðum og Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja niðurgreiða helming skólagjalda. Skilyrði fyrir inngöngu er stúdentspróf eða jafngildi þess, og hafa nemendur einnig BA, BSc og meistaragráður.

 

 

Prisma er metið til 12 eininga (ECTS) á háskólastigi. Námið nýtist sérstaklega þeim einstaklingum sem vilja horfa gagnrýnum og uppbyggilegum augum á samtímann, efla færni sína í að starfa á fleiri sviðum en áður og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

 

 

Meginþáttur í aðferðafræði kennslu og fyrirkomulags er skapandi og gagnrýnin hugsun en burðargreinar eru listfræði og heimspeki. Mörgum tengdum fögum er fléttað saman við meginþátt námsins s.s. ímyndafræði, menningarstjórnun, frumkvöðlafræði, hönnun og tíðaranda, myndmálssögu, tónlistarsögu og –miðlun, skapandi skrifum, aðferðafræði myndlistar og leikhúss, arkitektúr og skipulagi, miðlunarfræði, mannfræði, markaðsfræði og stjórnun. Að auki er boðið upp á gestafyrirlestra einu sinni í viku þar sem sérfræðingar segja frá því sem er að gerast í stefnumótun, rannsóknum og nýsköpun í samfélaginu og utan landssteinanna.

 

Yfir 40 sérfræðingar koma að náminu

Yfir 40 sérfræðingar víðsvegar að úr samfélaginu koma að kennslu í Prisma. Meðal þeirra eru Jón Ólafsson heimspekingur, Hallgrímur Helgason rithöfundur, Haukur Ingi Jónasson, guðfræðingur og sálgreinandi, Njörður Sigurjónsson, viðskiptafræðingur og heimspekingur, Kristín Eysteinsdóttir leikstjóri, Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst, Andri Snær rithöfundur, Guðmundur Oddur Magnússon (Goddur), prófessor við Listaháskólann, Sveinbjörn I. Baldvinsson, handritshöfundur, Viðar Hreinsson framkvæmdarstjóri Reykjavíkur Akademíunnar, Hjálmar Ragnarsson, rektor LHÍ og tónskáld, Sigríður Ingvarsdóttir, rekstrarstjóri frumkvöðlaseturs hjá Nýsköpunarmiðstöð,  Sumarliði R. Ísleifsson sagnfræðingur, Þorvaldur Þorsteinsson, rithöfundur og myndlistarmaður, Dóra Ísleifsdóttir, fagstjóri í grafískri hönnun og Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir hönnuður.

 

Markmið með náminu

 

1.         Þverfagleg þekking

Nemendur styrki þverfaglega menntun sína sem gerir þeim kleift að setja ólíkar starfsgreinar, fræðigreinar, hugmyndir og hluti í samhengi og starfa á fleiri sviðum en áður.

 

2.         Fleiri verkfæri í verkfæratöskuna

Nemendur öðlist þau verkfæri, þekkingu, reynslu og stuðning sem geta nýst þeim til að efla stöðu sína sem uppbyggilegir, skapandi og gagnrýnir þátttakendur í samfélaginu og láta framsæknar hugmyndir verða að raunverulegum verkefnum.

 

3.         Menntun á háskólastigi

Að námi loknu fá nemendur diplóma sem metið er til 12 eininga (ECTS) á háskólastigi. Nemendur sem ætla sér frekari menntun við Háskólann á Bifröst eða Listaháskóla Íslands geta fengið hluta námsins metið inn í nám á bakkálár- og meistarstigi, að gefnum ákveðnum skilyrðum.

 

4.         Umbreyting

Lykilorðið í náminu er umbreyting. Nemendur fá tækifæri til að gaumgæfa þær umbreytingar sem eru að eiga sér stað í samfélaginu útfrá fjölbreyttum sjónarhornum undir leiðsögn sérfræðinga. Í slíku umhverfi verða vandamál að tækifærum, hindranir að flóðgáttum og hugmyndafræðilegt hrun að upphafi á nýjum og spennandi tímum.

 

Skipulag námsins og fyrirkomulag

Kennsla fer fram á hverjum virkum degi í Hlíðasmára 3 í Kópavogi og 18. maí verður kennt í Háskólanum á Bifröst. Námið er á háskólastigi og ætlað fólki sem hefur að lágmarki stúdentspróf eða jafngildi þess.

 

Nánari upplýsingar veitir:

Hrund Gunnsteinsdóttir forstöðumaður Prisma í síma 895 6371/4584508 eða á hrund@lhi.is.  Einnig er hægt að nálgast upplýsingar um námið á heimasíðum skólanna: www.lhi.is og www.bifrost.is

 

Námslýsing Prisma

 

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri