10. apríl 2009
Upptaka frá morgunþingi um efnahagsmál
Háskólinn á Bifröst, í samstarfi við Kaupþing, efndi til morgunþings um efnahagsmál mánudaginn 6. apríl síðastliðinn í Kaupþingssalnum, Borgartúni 19. Sérstök áhersla var lögð á eignaumsýslufélög í eigu ríkisins og fjallað um þau út frá mismunandi sjónarhornum. Fundurinn fór fram á ensku.
Leitað var svara við eftirtöldum spurningum:
Hvaða úrræði hafa lítil hagkerfi á tímum sem þessum? Hvert á hlutverk ríkisins að vera? Hversu mikil eiga ríkisafskipti að vera? Hvaða leið hafa íslensk stjórnvöld farið? Hvaða leið hafa stjórnvöld í Ísrael farið? Hvað tekur við?
Dagskrá:
- Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst, setur fundinn.
- Tamir Agmon, forseti viðskiptadeildar Graduate School of Business, College of Management í Ísrael: The crisis, causes and remedies, an application for small and open economies.
- Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA: The U-turn.
- Arnar Þór Másson, staðgengill skrifstofustjóra hjá Fjármálaráðuneytinu: The Icelandic way regarding the build-up of an asset management company
- Þórður Pálsson, sérfræðingur NKB: NKB Business as unusual.
- Pallborðsumræður.
Fundarstjóri var Ásta Dís Óladóttir, forseti viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst.
Sjá auglýsingu um fundinn.