Fréttir
8. apríl 2009

Jón Ólafsson skipaður í starfshóp um siðareglur fyrir ráðherra

 

Forsætisráðherra hefur í samræmi við samþykkt ríkisstjórnarinnar frá 17. mars skipað starfshóp sem ætlað er að semja drög að siðareglum fyrir ráðherra í ríkisstjórn Íslands. Ber hópnum að hafa hliðsjón af sambærilegum siðareglum sem settar hafa verið í nágrannalöndum Íslands sem og nýsamþykktum reglum forsætisnefndar Alþingis um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum alþingismanna og trúnaðarstörfum utan þings.

 

Starfshópurinn skal jafnframt semja drög að siðareglum fyrir embættismenn og aðra starfsmenn stjórnsýslu ríkisins. Hópnum ber að vinna í samráði við stéttarfélög starfsmanna er starfa innan stjórnsýslu ríkisins og skal vinna hans m.a. byggja á viðmiðum um góða starfshætti ríkisstarfsmanna sem fjármálaráðuneytið gaf út 24. janúar 2006 og leiðbeiningum Evrópuráðsins og OECD um þetta efni.

 

Starfshópinn skipa þau Páll Þórhallsson, lögfræðingur í forsætisráðuneytinu sem er formaður hópsins, Halldóra Friðjónsdóttir, sérfræðingur í fjármálaráðuneytinu og Jón Ólafsson, prófessor og forseti félagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst.

 

Starfshópnum er ætlað að skila tillögum sínum til forsætisráðherra eigi síðar en 15. september nk 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri