Fréttir
8. apríl 2009

Rannsóknasetur verslunarinnar - smásöluverslun minnkar

Velta í dagvöruverslun dróst saman um 16,6% á föstu verðlagi í mars miðað við sama mánuð árið áður en jókst um 8,6% á breytilegu verðlagi á sama tíma. Velta í dagvöruverslun á föstu verðlagi hefur aldrei áður dregist svo mikið saman á milli ára frá því að farið var að birta smásöluvísitöluna árið 2001. Ástæðuna fyrir samdrættinum má að einhverju leyti rekja til þess að í fyrra voru páskar í mars en eru í apríl á þessu ári, en meiru skiptir að stöðugur samdráttur hefur verið í dagvöruverslun frá því í ágúst á síðasta ári. Verð á dagvöru hækkaði um 30,1% frá mars í fyrra. 

 

Sjá nánar á vef Rannsóknaseturs verslunarinnar.

 

Forstöðumaður Rannsóknaseturs verslunarinnar er Emil B. Karlsson

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri