7. apríl 2009
Bryndís Hlöðversdóttir kjörin stjórnarformaður Landsvirkjunar
Á aðalfundi Landsvirkjunar sem fram fór föstudaginn 3. apríl síðastliðinn var kjörin ný stjórn fyrirtækisins til eins árs.
Bryndís Hlöðversdóttir aðstoðarrektor og forseti lagadeildar Háskólans á Bifröst er nýr stjórnarformaður Landsvirkjunar. Hún tekur við af Ingimundi Sigurpálssyni.
Aðrir í stjórn Landsvirkjunar eru:
Sigurbjörg Gísladóttir, efnafræðingur við Umhverfisstofnun, varaformaður
Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Póstsins
Páll Magnússon, bæjarritari í Kópavogi
Stefán Arnórsson, prófessor við Háskóla Íslands
Úr stjórn gengu Gylfi Árnason verkfræðingur og Jóna Jónsdóttir viðskiptafræðingur.
Varamenn í stjórn Landsvirkjunar eru:
Anna Dóra Sæþórsdóttir, dósent við Háskóla Íslands
Birgir Jónsson, jarðverkfræðingur við Háskóla Íslands
Huginn Freyr Þorsteinsson, aðjúnkt við Háskólann á Akureyri
Jóna Jónsdóttir, viðskiptafræðingur hjá Norðlenska á Akureyri
Vigdís M. Sveinbjörnsdóttir, bóndi á Egilsstöðum