Fréttir
7. apríl 2009

Ingibjörg Þorsteinsdóttir hlýtur styrk til skattrannsókna

 

Ingibjörg Þorsteinsdóttir, dósent í lagadeild,  hefur fengið styrk frá Norræna skattrannsóknarráðinu til rannsókna á sviði skattaréttar. Rannsóknin sem styrknum er ætlað að fjármagna fjallar um reglur alþjóðlegs skattaréttar um ráðstafanir til að koma í veg skattaundanskot, svokallaðar varnarreglur.  Rannsóknin er þríþætt; Í fyrsta hluta hennar verður gerð grein fyrir  innlendri löggjöf sem snertir skattaundanskot í alþjóðlegu samhengi. Annar hlutinn felur í sér greiningu á þeim tækjum sem tiltæk eru í alþjóðlegum skattarétti til að koma í veg fyrir undanskot skatta.  Í þessum hluta verður einnig gerð almenn grein fyrir því á hvern hátt ákvæði  í alþjóðlegum samningnum um bann við mismunun, kunna að takmarka svigrúm til að setja varnarreglur í innlenda löggjöf. Í þriðja og síðasta hlutanum verða tilteknar varnarreglur, einkum CFC-löggjöf, reglur um milliverðlagningu og lága eiginfjármögnun skoðaðar nánar út frá framangreindri meginreglu um bann við mismunun. 

Vinna við rannsóknina mun hefjast næstkomandi haust og gert er ráð fyrir að verkefninu ljúki um mitt ár 2011.  Styrkurinn frá Norræna skattrannsóknarráðinu er að fjárhæð 150.000 danskar krónur.

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri