Málþing á sviði skattaréttar var haldið í Háskólanum á Bifröst fimmtudaginn 2. apríl sl.
Hlusta má á upptöku frá málþinginu hér.
Á síðustu mánuðum hefur að því er virðist orðið mikil viðhorfsbreyting um heim allan gagnvart skattasniðgöngu. Mál bandarískra skattyfirvalda gegn svissneska bankanum UBS og lyktir þess er dæmi um slíkt sem og frumvarp um CFC löggjöf sem nú liggur fyrir Alþingi. Sífellt fleiri ríki hafa nú látið undan þrýstingi til að láta erlendum skattyfirvöldum í té upplýsingar um viðskiptavini þarlendra banka. Þá berast reglulega af því fréttir af erlendum sem innlendum vettvangi að sett eru spurningamerki við ráðstafanir stórfyrirtækja á sviði skattamála. Eru þetta nornaveiðar eða eðlilegar kröfur um gagnsæi og sanngjarnt framlag stórfyrirtækja til samfélagsins? Eru bankaleynd og skattaskjól ef til vill fyrirbæri sem brátt heyra fortíðinni til? Þessum spurningum og fleirum var leitast við að svara á málþingi Háskólans á Bifröst, fimmtudaginn 2. apríl, síðastliðinn.
Dagskrá málþingsins
Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst
Ávarp og setning málþings
Ingibjörg Ingvadóttir, lektor við Háskólann á Bifröst.
“Blásið til sóknar”
Varnir OECD gegn skaðlegri skattasamkeppni. Hvaða úrræði hefur OECD lagt til að notuð séu í baráttunni gegn skattaundanskoti?
Indriði H. Þorláksson, ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneyti.
Frumvarp um CFC löggjöf – leið til að styrkja skattframkvæmd og vinna gegn undanskoti.
Efni frumvarpsins og meginmarkmið. Hvað breytist við samþykkt frumvarpsins?
Skúli Eggert Þórðarson, ríkisskattstjóri
„Huliðshjálmar“
Hvernig verða skattaskjól til fyrir íslensk fyrirtæki? Var það þáttur í nútíma rekstri og útrás að fela eignarhald fyrir skattyfirvöldum?
Ingibjörg Þorsteinsdóttir,dósent við Háskólann á Bifröst.
„Ábyrgð banka á skattsvikum viðskiptavina“
Fjallað um mál bandarískra skattyfirvalda gegn svissneska bankanum UBS, um lyktir þess máls og tengd mál.
Umræður og pallborð
Fundarstjóri: Bryndís Hlöðversdóttir, aðstoðarrektor Háskólans á Bifröst.