Níu lönd á norðurslóðum hafa tekið höndum saman um að bjóða verslunareigendum í fámennum byggðarlögum ráðgjöf og fræðslu til að styrkja stöðu þeirra. Rannsóknasetur verslunarinnar við Háskólann á Bifröst átti frumkvæði að verkefninu og stjórnar því hér á landi í samstarfi við Byggðastofnun og nokkur atvinnuþróunarfélög. Það er Norðurslóðaáætlunin (NPP) og Norður-Atlantshafsnefndin (NORA) sem styrkir verkefnið og nemur styrkur til Rannsóknaseturs verslunarinnar 12 millj. kr.
Nánari upplýsingar á vef Rannsóknaseturs verslunarinnar