8. apríl 2009
Kynjakennitölur á heimsvísu
 |
| Frá fundinum í Sao Paulo |
Ráðgjafateymi frá Háskólanum á Bifröst hefur undanfarna mánuði unnið að gerð mælikvarða á jafnfrétti og tekið þátt í samráðs- og vinnufundum víðs vegar um heim. Í marsmánuði voru haldnir tveir slíkir fundir annars vegar í Sao Paulo í Brasilíu og hins vegar í Deli á Indlandi.
Ingibjörg Þorsteinsdóttir, dósent í lagadeild, tók þátt í fundinum í Brasilíu. Þar hittist fjöldi aðila frá fyrirtækjum, samtökum og opinberum fyrirtækjum, sem hafa áhuga á að auka vægi jafnréttismála í stjórnun fyrirtækja og búa til mælikvarða til að fylgjast með og meta árangurinn.
Með vorinu mun árangur af starfi vetrarins koma í ljós, þar sem ráðgert er að skýrsla ráðgjafarhópsins verði tilbúin í júní. Efni hennar verður lagt til grundvallar við gerð leiðbeininga fyrir fyrirtæki sem vilja birta skýrslur um stöðu jafnréttis. Hingað til hefur ekki tekist að búa til leiðbeiningar og setja fram mælikvarða á sviði kynjajafnréttis, sem ætlað er að gagnast öllum fyrirtækjum óháð því hvar þau eru starfrækt í heiminum og án tillits til stærðar eða gerðar. Því er til nokkurs unnið ef vel tekst til. Markmið funda með fulltrúum atvinnulífsins er að afla upplýsinga frá fyrstu hendi um stöðu jafnréttismála innan viðkomandi fyrirtækja og stofnana og afla gagna um það hvernig mælikvarðar og leiðbeiningar um skýrslugerð geti sem best gagnast viðkomandi aðilum til að þokast nær jafnri stöðu kynjanna. Næsti fundur verður í lok apríl í Washington.
Rannsóknarteymi frá Háskólanum á Bifröst var fengið til ráðgjafar við vinnslu þessa verkefnis en það er unnið að frumkvæði og á ábyrgð Alþjóðalánastofnunarinnar (IFC) í samstarfi við Global Reporting Initiative (GRI). Stjórnandi verkefnisins er Elín Blöndal, prófessor og Birgir Óli Sigmundsson starfar einnig í teyminu ásamt Ragnheiði Morgan, meistaranema við lagadeild.
Meistaranemarnir Kári Gunndórsson og Pálmi Rögnvaldsson hafa einnig veitt aðstoð við einstaka þætti verkefnisins, auk þess sem Einar Svansson, aðjúnkt í viðskiptadeild, hefur verið hópnum innan handar með sérfræðiráðgjöf og góð ráð.