Fréttir
2. apríl 2009

Nemendafélag Háskólans á Bifröst styður stúdenta við Háskóla Íslands

Nemendafélag Háskólans á Bifröst hefur lýst yfir stuðningi við kröfur stúdenta við Háskóla Íslands um að skólinn komi til móts við þá nemendur sem ekki fá vinnu í sumar. 

 

Nemendafélag Háskólans á Bifröst sendi nú síðdegis frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:

 

Samkvæmt könnun Morgunblaðsins sem birt var 1. apríl er ljóst að tæplega 13.000 háskólanemar verða án atvinnu í sumar. Í kjölfar þess er nú þrýst á Háskóla Íslands að koma til móts við nemendur með því að vera með sumarnámskeið.

 

Á Bifröst er boðið upp á 45 námskeið á sviði lögfræði, viðskipta og félagsvísinda og geta nemendur í grunnnámi lokið 20 ECTS einingum á sumarönn. Þeir nemendur sem hyggja á meistaranám geta hafið námið á sumarönninni á Bifröst. Þetta skipulag er hefðbundið á Bifröst og teljum við að það komi fyllilega til móts við þarfir nemenda í ljósi aðstæðna.

 

Nemendur á Bifröst meta þennan möguleika mjög og skora á stúdenta á Íslandi að þrýsta á samstarf á milli skóla og að námskeið verði metin á milli skóla. Með tilliti til þessa er einnig skorað á LÍN að endurskoða lánareglur sínar í þeim tilgangi að gera nemendum kleift að stunda lánshæft nám á milli háskóla. 

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri