2. apríl 2009
Grábrók, tímarit lagadeildar er komið út
Fyrsta tölublað tímaritsins Grábrókar, sem gefið er út af lagadeild Háskólans á Bifröst, kom út fyrir skömmu. Í tímaritinu eru fimm greinar á sviði skatta- og félagaréttar.
Höfundar greinanna eru Ástráður Haraldsson dósent, sem fjallar um almenn félög og sérstöðu stéttarfélaga meðal þeirra, Ingibjörg Þorsteinsdóttir dósent, sem fjallar um átök og árangur á sviði skattaréttar Evrópusambandsins og Ragnheiður Snorradóttir stundakennari, skrifar um þunna eiginfjármögnun. Þau Ástráður, Ingibjörg og Ragnheiður starfa öll við Háskólann á Bifröst.
Þrír erlendir höfundar eiga efni í ritinu; Karsten Engsig Sörensen, prófessor við Viðskiptaháskólann í Árósum og Nis Jul Clausen prófessor við SDU rita grein sem nefnist: Thi OMX/Norex Alliance and the building of an integrated Nordic-Baltic financial market og Thomas Rönfeldt, doktorsnemi við háskólann í Álaborg, kallar sína grein: Danske værn mod kapitalfondsopköb: Regler om CFC-beskatning og tynd kapitalisering er ikke tilstrækkelige.
Ritstjóri Grábrókar er Guðmundur Jónsson, ML en auk hans áttu sæti í ritnefnd þau Bryndís Hlöðversdóttir, forseti lagadeildar, Einar Karl Haraldsson, dósent og Sóley Sigmarsdóttir, laganemi.
Umbrot og kápugerð annaðist hönnunarstofan Útópía ehf, myndskreytingar eru eftir Rebekku Rán Samper og tímaritið var prentað í prentsmiðjunni Odda.