27. mars 2009
Allir greiðsluseðlar rafrænir
Frá og með 1. apríl 2009 hættir Háskólinn á Bifröst að senda út greiðsluseðla úr pappír fyrir skólagjöldum og húsaleigu.
Allir greiðsluseðlar eru orðnir rafrænir og birtast í heimabönkum. Nú eru reikningar orðnir það líka og til skoða reikningana eða prenta þá út er farið inná heimabankann í yfirlit og rafrænar skrár. Þeir sem óska eftir að fá greiðsluseðil/reikning í tölvupósti vinsamlega hafið samband við Kristínu Finndísi Jónsdóttur innheimtufulltrúa í síma 433-3033 eða í tölvupósti kristín@bifrost.is
Hugsun Háskólans á Bifröst er að leggja umhverfismálum lið með að draga úr pappírsnotkun og þeim kostnaði sem því fylgir og auka rafræn viðskipti.
Háskólinn á Bifröst hefur ekki tekið seðilgjald fyrir innheimtu greiðsluseðla þannig að þetta hefur ekki áhrif á kostnað.