Fréttir
27. mars 2009

Fyrsti nemendahópurinn útskrifast úr Prisma

Rúmlega 70 nemendur voru föstudaginn 27. mars, útskrifaðir úr Prisma, diplómanámi á vegum Háskólans á Bifröst og Listaháskóla Íslands.

 

 Nýtt Prisma nám hefst 27. apríl næstkomandi.

 

 

Útskriftin fór fram í húsnæði Saltfélagsins. 

 

Menntamálaráðherra ávarpaði gesti, ásamt rektorum skólanna og forstöðumanni Prisma.

 

Prisma er nýtt diplómanám sem Listaháskóli Íslands og Háskólinn á Bifröst hafa skipulagt í samvinnu við Reykjavíkur Akademíuna. Námið er metið til 16 eininga (ECTS) á háskólastigi og nýtist sérstaklega þeim einstaklingum sem vilja horfa gagnrýnum og uppbyggilegum augum á samtímann, efla færni sína í að starfa á fleiri sviðum en áður og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

 

Metaðsókn var í Prisma sem hófst 2. febrúar og lauk nú 27. mars. Yfir hundrað nemendur sóttu um í námið og bæði andinn og afraksturinn í náminu varð framar vonum. Námið var skipulagt sem viðbrögð háskólanna við ástandinu í landinu og sátu námið nemendur á aldrinum 20 til 65 ára, með mjög fjölbreyttan bakgrunn hvað menntun og starfsgreinar varðar. Í nemendahópnum eru einstaklingar sem koma úr fjármálageiranum, viðskiptum og verslun, grafískri hönnun, arkitektúr, myndlist, leiklist, fyrirtækjarekstri, kennslu o.fl.

 

 

Yfir fimmtíu sérfræðingar víðsvegar að úr samfélaginu koma að kennslu í Prisma. Meðal þeirra eru Jón Ólafsson heimspekingur, Hallgrímur Helgason rithöfundur, Haukur Ingi Jónasson, guðfræðingur og sálgreinandi, Njörður Sigurjónsson, viðskiptafræðingur og heimspekingur, Jóhann P. Malmqvist, frumkvöðull og prófessor í verkfræði, Kristín Eysteinsdóttir leikstjóri, Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst, Andri Snær Magnason rithöfundur, Guðmundur Oddur Magnússon (Goddur), prófessor við Listaháskólann, Sveinbjörn I. Baldvinsson, handritshöfundur, Viðar Hreinsson framkvæmdastjóri Reykjavíkur Akademíunnar, Hjálmar Ragnarsson, rektor LHÍ og tónskáld, Sigríður Ingvarsdóttir, rekstrarstjóri frumkvöðlaseturs hjá Nýsköpunarmiðstöð,  Halldór Guðmundsson rithöfundur, Sumarliði R. Ísleifsson sagnfræðingur, Þorvaldur Þorsteinsson, rithöfundur og myndlistarmaður, Dóra Ísleifsdóttir, fagstjóri í grafískri hönnun og Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir hönnuður.

 

Utan um nemendahópinn halda fjórir „auðveldarar”. Þau eru Hildigunnur Sverrisdóttir arkitekt, Sólveig Ólafsdóttir sagnfræðingur og MA í menningarfræðum, Sigurður Jónas Eysteinsson, lífskúnstner og sérfræðingur á ýmsum sviðum og Hallmar Sigurðsson leikhúsfræðingur og MA í menningarfræðum.

 

Nánari upplýsingar veitir Hrund Gunnsteinsdóttir forstöðumaður Prisma í síma 895 6371 eða á hrund@lhi.is  Einnig má nálgast upplýsingar um námið á heimasíðum skólanna: www.lhi.is og www.bifrost.is

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri