Fimmtudaginn 26. mars verður réttur settur í Aðalbóli á Bifröst og þar munu meistaranemar í lögfræði spreyta sig á málflutningi.
Meistaranemarnir hafa undirbúið sig líkt og þeir væru að fara með málin fyrir dómstól, allt frá því að stefna aðilum og gera kröfur og greinargerðir á móti. Málin, sem nemendur spreyta sig á, eru raunveruleg mál sem ýmist eru fyrir dómstólum í dag eða dæmt hefur verið í.
Allir eru hjartanlega velkomnir að fylgjast með og sjá hvernig gengur hjá meistaranemum í fyrsta málflutningi þeirra.
Dagskrá er eftirfarandi:
08:30 – 09:30
Mál 1 - Skaðabætur, laun, atvinnumál
Eva Sólan fyrir stefnanda Sæmund Sæmundson, Pálmi og Halldóra fyrir stefndu Fiskistofu og Hinrik Hinriksson.
09:45 – 10:45
Mál 4 - Skaðabætur, varanleg örorka
Hafdís Heiða fyrir stefnanda Hilmar Hilmarsson og Kristín María fyrir stefnda Landspítalann.
11:00 – 12:00
Mál 6 - Fæðingarorlof, skaðabætur
Guðni fyrir stefnanda Hörpu Sjöfn og Haukur fyrir stefnda Plendo.
12:15 – 13:15
Mál 5 - Skuldamál
Steinbergur og Elín Björg fyrir stefnanda Turkbank; fyrir stefndu, Kristín Einars fyrir Landsbanka Íslands og Hanna Steina fyrir FME.
13:30 – 14:30
Mál 2 - Dráttarvextir, innheimtukostnaður
Kristján fyrir stefnanda Spýtur ehf. og Indriði fyrir stefnda íslenska ríkið.
14:45 – 15:45
Mál 7 - Bótamál, fyrning
Hjálmar fyrir stefnanda Þorlák Þorláksson; fyrir stefndu Bergþóra fyrir íslenska ríkið og Aldís fyrir Reykjavíkurborg.
16:00 – 17:00
Mál 3 - Ólögleg handtaka, skaðabætur
Kári fyrir stefnanda Finn Finnsson; Helgi fyrir stefnda íslenska ríkið.